Grand hótel Reykjavík
Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks glæsihótel með 314 herbergjum, 14 ráðstefnu- og veislusölum
Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks ráðstefnuhótel með 314 herbergjum, 14 ráðstefnu- og veislusölum ásamt veitingastaðnum Brasserie Grand.
Sumarið 2007 tók Grand Hótel Reykjavík í notkun nýjan 14 hæða turn sem tengdur er við hótelið með glerbyggingu. Þar er móttakan og anddyrið ásamt vetrargarðinum, Miðgarði. Í nýbyggingunni bættust við 209 herbergi sem öll er rúmgóð og vel útbúin eins og eldri herbergi okkar eru. Almennt eru herbergin um 27,5 m2, með stóru baðherbergi sem útbúið er bæði með baðkari og sér sturtuklefa, flísum og hita í gólfi. Herbergin eru fallega innréttuð með öllum nútíma þægindum eins og kaffi og te setti, straujárni og bretti, háhraðatengingu og pay-TV. Á 13. hæð eru tvær forsetasvítur með 94 m2 stofu/móttökusvæði og 40m2 svefnherbergi.
Útsýnið er stórkostlegt úr herbergjunum á efri hæðum hótelturnsins og gott útsýni frá öllum svæðum, ýmist yfir borgina eða yfir vetrargarðinn Miðgarð. Í turninum bættust einnig við þrír ráðstefnusalir, tvö fundarherbergi og tveir veislusalir. Í kjallara hótelsins er fyrsta flokks heilsulind með líkamsrækt og snyrtistofu.
Grand Hótel Reykjavík er í rólegu umhverfi og stutt er í útivistarsvæðið í Laugardal og göngu- og hjólastíga meðfram strandlengjunni. Hótelið býður upp á skutluþjónustu til miðborgarinnar nokkrum sinnum í viku.
Glæsilegir ráðstefnusalir fyrir öll tækifæri
Grand Hótel Reykjavík er eitt stærsta ráðstefnuhótel landsins og við leggjum mikla áherslu á að geta tekið á móti bæði stórum og smáum hópum við öll tækifæri. Á hótelinu eru 14 ráðstenfusalir og fundarherbergi sem taka frá sex og upp í 470 manns í sæti. Stærsti salurinn er 345 m2. Salirnir eru búnir nýjasta og fullkomnasta tæknibúnaði. Víða er rými til sýningarhalds. Við leigjum einnig út skrifstofuaðstöðu með tölvu, prentara og fleiri möguleikum.
Náttúruvænt hótel
Við stækkun hótelsins var lögð áhersla á að gang frá rafmagni með þeim hætti að húsið væri laust við alla rafsegulmengun. Allt burðarvirki var tengt við um 200 bergfestur sem ná sex metra inní bergið undir hótelinu. Hótelið er það fyrsta í heiminum sem fer í slíkar aðgerðir.
Það besta í mat og drykk
Á hótelinu er fyrsta flokks "a la carte" veitingastaður, Brasserie Grand. Þar má bragða á íslenskum sjávarréttum sem og alþjóðlegum réttum, snæða léttan hádegisverð eða fjögurra rétta veislumáltið. Á vinseðli er úrval sérvalinna vína.
Dekrað við líkama og sál
Á neðstu hæð hótelsins er Grand Spa sem er allt í senn heilsulind, líkamsrækt og snyrtistofa. Á Grand Spa er rólegt og notalegt umhverfi, þar sem hægt er að sláka á í heitum pottum og í boði er háls- og herðanudd hjá færustu nuddurum. Einnig er hægt að fara í gufubað eða slaka á við notalegan arineld.
Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





