Ráðstefnu aðstaða
Ráðstefnu og fundaaðstaðan á Grand Hótel Reykjavík
Á Grand Hótel Reykjavík finnur þú fyrsta flokks ráðstefnu- og veisluaðstöðu. Um er að ræða 13 sali sem taka á bilinu 6-470 manns. Stærsti salurinn, Gullteigur er einn sá tæknivæddasti á landinu. Gullteigur getur rúmað allt að 470 manns í sæti auk þess sem 170 fermetra forrými salarins býður upp á marga möguleika s.s sýningarsvæði.
Í 14. hæð í turninum á Grand Hótel Reykjavik eru þrír fundarsalir, tveir móttökusalir og tveir minni fundarsalir.
Í nýja móttöku og bar svæði er skemmtileg aðstaða til að halda stórar móttökur og veislur.
Hér má sjá yfirlit yfir stærðir salanna ( PDF skjal 809 KB)
Hér má svo nálgast ráðstefnubæklinginn okkar (PDF skjal 4,2 KB).
Ráðstefnur; Aðstaða og þjónusta
Sölu- og þjónustufulltrúar í ráðstefnudeildinni á Reykjavíkurhótelunum eru ávallt reiðubúnir að aðstoða þig við skipulagningu og undirbúning ráðstefnu eða veisluhalda. Hvort heldur um er að ræða litla fundi, stórar ráðstefnur, fermingarveislur, brúðkaup, árshátíðir sem og önnur einkasamkvæmi leggja þau metnað sinn í að tilefnið heppnist sem best.
Nánari upplýsingar og tilboðsgerð í veisluna eða ráðstefnuna þína:
Linda C. Martinsdóttir, ráðstefnustjóri, beinn sími: 514-8020, netfang
Ásta Axelsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8041, netfang
Salvör Brandsdóttir, sölufulltrúi og matreiðslumeistari, beinn sími: 514-8019, netfang
Hlín Íris Arnþórsdóttir, sölufulltrúi, beinn sími: 514-8034, netfang
Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





