Árshátíðir og veislur
Árshátíðir á Grand hótel Reykjavík
Grand Hótel Reykjavík er kjörinn staður til að halda árshátíðina í ár. Við bjóðum fyrirtækjum, stórum sem smáum, stofnunum og félagasamtökum, viðráðanleg árshátíðartilboð en erum samt "Grand á því".
Grand árshátíð kertaljós og “carnival”
Við á Grand Hótel Reykjavík bjóðum margar tegundir af sölum og veisluföngum fyrir árshátíðina. Hjá okkur eru glæsilegir veislusalir og sérhæft starfsfólk okkar tekur á móti stórum sem smáum hópum.
Við sérsníðum veitingar og umgjörð fyrir hvert tilefni í samráði við viðskiptavini. Við getum tekið á móti litlum árshátíðarhópum og allt upp í tvö til þrjúhundruð manna hópum. Það eru 13 salir á Grand Hótel sem taka á frá 6 - 470 manns. Stærsti salurinn er Gullteigur og er hann jafnframt einn sá tæknivæddasti á landinu. Gullteigur er mjög smekklegur salur og auk þess sem 170 fermetra forrými salarins býður upp á marga möguleika.
Ástríða og áhugamál
Matur og þjónusta er okkur í senn ástríða og áhugamál. Hjá okkur starfa afar færir matreiðslumeistarar og bakarar sem leggja metnað sinn í að gera veisluföngin áhugaverð og spennandi. Allt brauð er bakað á staðnum og eftirréttirnir lagaðir úr íslensku hráefni af okkar færustu fagmönnum.
Við vitum að hópar hafa ólíkar þarfir og leggjum okkur fram við að bjóða upp á fjölbreytta rétti.
Framreiðslumenn okkar taka fagmannlega á móti gestum, ráðleggja varðandi val á vínum og leggja sig fram um að skapa notalegar stundir.
Komdu elskunni á óvart. Árshátíð og gisting á Grand hótel
Það er tilvalið að gista hjá okkur í rólegheitum og spara ferðakostnað heim um nætur. Komdu elskunni á óvart og bókaðu Grand herbergi. Herbergin eru búin öllum helstu þægindum. Sérstök áhersla er lögð á munað, glæsileika, hlýleg herbergi, svítur og fjölskylduherbergi.
Úr turninum er dásamlegt útsýni yfir borgina við sundin. Ekkert smá rómó stemning.
Við bjóðum í vetur árshátíðartilboð fyrir parið í tveggja manna herbergi. Morgunverðarhlaðborð er innifalið.
Nánari upplýsingar í síma 514-8000
Hafið sambandi við Lindu, Ástu eða Salvöru um frekari upplýsingar.
Linda Martinsdóttir - linda@grand.is
Ásta Axelsdóttir – astaa@grand.is
Salvör L. Brandsdóttir - salvor@grand.is
Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





