Brúðkaupið
Brúðkaupsveislur á Grand hótel
Á Grand Hótel Reykjavík er fyrsta flokks aðstaða til veisluhalda og höfum við sérhæft okkur í brúðkaupsveislum. Vanda þarf til skipulagningar á brúðkaupi og val á veislu og staðsetningu er einn af því sem þarf að ákveða.
Brúðhjónin
Brúðhjónin njóta alls hins besta sem Grand Hótel Reykjavík hefur upp á að bjóða í gistingu, mat og drykk.
Í boði eru tveir glæsilegir brúðkaupspakkar sem brúðhjónin geta notið eftir brúðkaupsveisluna. Upplifunin er ógleymanleg í rómantískri brúðarsvítu á efstu hæðinni í turni hótelsins ... og útsýnið er stórkostlegt yfir borgina og sundin blá. Ímyndaðu þér ískalt freyðivín, rósir, konfekt og ávaxtakörfu, óvænta gjöf frá hótelinu, himneskt nudd og morgunmatur í rúmið. Svo getið þið valið hvort þið viljið snæða fjögurra rétta kvöldverð með víni við arineld.
Við getum einnig sérhannað fyrir ykkur drauma brúðkaupspakkann fyrir.
Brúðkaupspakkar (PDF skjöl) sem hægt er að prenta út:
Sætir hveitibrauðsdagar á Grand hótel Reykjavík (PDF skjal 328 KB)
Drauma brúðkaupspakkinn á Grand hótel Reykjavík (PDF skjal 304 KB)
Þessir pakkar henta einnig fyrir brúðkaupsafmæli.
Frekari upplýsingar; Linda, s. 514-8020 og netfang
Veislusalir fyrir brúðkaup
Hvort sem þið eruð að skipuleggja minni brúðkaup eða stóra veislu getum við aðstoðað ykkur við skipulagningu á veislusalnum, veisluföngunum og séð um gistinguna fyrir gestina. Á hótelinu eru veislusalir sem rúma 30-300 gesti í borðhaldi. Hér eru frekari upplýsingar um stærð salanna og gerð þeirra.
Við erum með færanlegt dansgólf og svið fyrir minni salina, og getum aðstoðað við að útvega tónlist. Á hótelinu er tæknilega fullkominn búnaður fyrir allar mögulegar uppákomur. Hljóðkerfi og annar búnaður til hljóðs er af bestu gerð, sem og myndsýningar- og tölvubúnaður.
Kynningarblöðungur um veislusali (PDF skjal) sem hægt er að prenta út:
Brúðkaupsveislur á Grand hótel (PDF skjal 404 KB)
Frekari upplýsingar; Linda, s. 514-8020 og netfang
Maturinn í brúðkaupinu
Matreiðslumennirnir eru snillingar í eldhúsinu og matreiðsla er þeirra ástríða. Þeir laða fram það besta úr eldhúsinu og geta búið til drauma matarveislu fyrir brúðkaupið ykkar.
Þið getið valið úr tilbúnum veislupökkum; kvöldverðarhlaðborð, létt kvöldverðarhlaðborð, pinnahlaðborð, kaffihlaðborð og úrval á þriggja rétta matseðli. Svo er einnig hægt að fá faglega ráðgjöf við samsetninguna á veislunni.
Kynningarblöðungar um veitingar (PDF skjöl) sem hægt er að prenta út:
Allar veitingar fyrir brúðkaupsveislur (PDF skjal 914 KB)
Kvöldverðarhlaðborð (PDF skjal 430 KB)
Létt kvöldverðarhlaðborð (PDF skjal 430 KB)
Pinnahlaðborð (PDF skjal 430 KB)
Úrval á þriggja rétta matseðli (PDF skjal 430 KB)
Kaffihlaðborð (PDF skjal 430 KB)
Frekari upplýsinga; Salvör, matreiðslumeistari , s. 514-8019 og netfang
Gisting fyrir brúðkaupsgesti
Að sjálfsögðu er í boði gisting á hótelinu fyrir veislugesti. Við bjóðum brúðhjónum sem halda veisluna sína hjá okkur, fyrir 50 manns eða fleiri, upp á brúðarsvítu í boði hótelsins og svo erum við með sér gistiverð fyrir brúðkaupsgestina. Herbergin á Grand hótel Reykjavík eru stór og vel búin, öll með baðkeri og sturtu, sjónvarpi, minibar, hárþurrku, straujárni og bretti, kaffivél og öryggishólfi.
Við erum reiðubúin til þess að aðstoða við skipulagningu og undirbúning svo brúðkaupsveislan heppnist sem best.
Frekari upplýsingar gefa;
Salvör, matreiðslumeistari , s. 514-8019 og netfang
Linda, ráðstefnustjóri, s. 514-8020 og netfang
Ásta, sölufulltrúi, s. 514-8041 og netfang
Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





