Erfidrykkjur
Erfidrykkjur á Grand hótel
Erfidrykkja hefur tilfinnanlegt gildi fyrir ættingja og aðstandendur og er hluti af þessum félagslega þætti að minnast hins látna. Það er mikilvægt fyrir aðstandendur að hittast í notalegu umhverfi eftir útförina, nærast á góðum veitingum með ástvinum og ættingjum og rabba saman í góðu tómu eftir átakanlega stund.
Á Grand hótel færðu faglega þjónustu og góðar veitingar. Við leggjum mikla áherslu á viðeigandi framsetningar á veitingunum og notum ávallt ferskt og hágæða hráefni. Allar veitingar á veitingaborðinu eru búnar til á staðnum.
Í erfisdrykkjunni eru borðin dekkuð með hvítum dúkum og eru rósir og kerti á borðum. Þar er hægt að setja upp sérstakt borð til heiðurs hinum látna með gestabók, ljósmynd, blómum og kertum.
Veitingar fyrir erfidrykkjur
Á Grand hótel er mikil áhersla lögð faglega framsetningu á veitingunum og ávallt er notað ferskt og hágæða hráefni. Allar veitingar eru búnar til á staðnum. Hægt er að velja úr tilbúnum veitingapökkum hér að neðan og einnig er hægt að fá faglega ráðgjöf við samsetninguna á veitingunum.
Hér eru dæmi um veitingar fyrir erfidrykkjur:
Kaffihlaðborð fyrir erfidrykkjur
Kaffihlaðborð með marsipantertu
Létt hádegisverðarhlaðborð
Létt kvöldverðarhlaðborð
Pinnahlaðborð
Smáréttahlaðborð
Heitir og kaldir smáréttir
Smáréttir og tapas
Brunch og heitir réttir
Hér má sjá frekari upplýsingar um veitingar sem eru í boði fyrir erfidrykkjur
Salir fyrir erfidrykkjur
Á Grand hótel er fjölbreytilegt úrval af sölum sem henta vel til erfidrykkju.
Fyrirmyndaraðstaða fyrir allt að 400 manns. Borðin eru dekkuð með hvítum dúkum, rósum og kertum. Það er velkomið að setja upp sérstakt borð til heiðurs hinum látna; með gestabók, ljósmynd, blómum og kertum. Hlýleiki og persónuleg þjónusta er höfð í fyrirrúmi.
Hér má sjá frekari upplýsingar um salina sem eru í boði fyrir erfidrykkjur
Aðgengi er til fyrirmyndar á hótelinu og næg bílastæði fyrir utan.
Kynningarblöðungur (PDF skjöl) sem hægt er að prenta út:
Almennar upplýsingar um erfidrykkju á Grand hótel Reykjavik (PDF skjal 536 KB)
Almennar upplýsingar um veitingar fyrir erfidrykkjur (PDF skjal 800 KB)
Upplýsingar um salarkynni fyrir erfidrykkjur (PDF skjal 743 KB)
Hafðu samband við okkar í síma eða sendu póst
Hafi þið áhuga á að koma og skoða salina hjá okkur fyrir erfisdrykkjur mun fagfólk okkar sjá um það. Sjón er sögu ríkari. Við tökum vel á móti ykkur.
Linda C. Martinsdóttir, beinn sími: 514-8020, netfang
Ásta Axelsdóttir, beinn sími: 514-8041, netfang
Salvör Brandsdóttir, beinn sími: 514-8019, netfang
Fréttir og tilboð
Ógleymanlegar stundir á Grand hótel
Í boði eru tveir glæsilegir brúðkaupspakkar sem brúðhjónin geta notið eftir brúðkaupsveisluna. Up...
Meira





