Veislusalir
Salir fyrir erfidrykkjur á Grand hótel
Á Grand hótel er fjölbreytilegt úrval af sölum sem henta vel til erfidrykkju.
Fyrirmyndaraðstaða fyrir allt að 400 manns. Borðin eru dekkuð með hvítum dúkum, rósum og kertum. Það er velkomið að setja upp sérstakt borð til heiðurs hinum látna; með gestabók, ljósmynd, blómum og kertum. Hlýleiki og persónuleg þjónusta er höfð í fyrirrúmi.
Aðgengi að hótelinu er til fyrirmyndar og næg bílastæði fyrir utan, sem og í bílastæðakjallara.
Gullteigur
er stærsti salurinn í húsinu (345 fm) og þar rúmast allt að 300 manns við hringborð. Einnig er hægt að tvískipta salnum fyrir 110 og 130 manns.
Fyrir framan Gullteig er huggulegt forrými sem hægt er að nýta t.d. til tónlistarflutnings og geta gestir jafnvel setið þar og fengið sér kaffi.
Hvammur
Í Hvammi geta setið allt að 130 manns við hringborð. Salurinn sem er á jarðhæð er 172 fm að stærð. Hvammur er bjartur og hlýr salur með stórum og fallegum gluggum á eina hlið. Hægt er að hafa hlaðborð inni eða fyrir framan, allt eftir því hvað hentar hverju sinni.
Salurinn er allur nýuppgerður í stíl við nýja hluta hótelsins.
Aðgengi að Hvammi er sérlega þægilegt.
Háteigur A og B
Háteigur A og B eru staðsettir á fjórðu hæð. Þar er einstakt útsýni yfir borgina, sundin blá og fjallahringinn allt um kring. Hægt er að ganga út á svalirnar, fá sér frískt loft og njóta útsýnis til þriggja átta. Stærri salurinn rúmar allt að 70 manns við hringborð og sá minni 60 manns.
Háteigur A og B henta vel fyrir erfidrykkjukaffi í kyrrþey og minni hópa.
Miðgarður
er móttökusvæði hótelsins. Svæðið er einstaklega fallegt og bjart, og aðgengi er gott. Glæsileg glerlistaverk Leifs Breiðfjörðs gefa svæðinu einstakan blæ og glæsilegt yfirbragð. Þarna geta rúmast allt að 300 manns.
Setur
er á jarðhæð og þar geta 130 manns setið við hringborð.
Salurinn er einkar opinn og bjartur, þar er þægilegt andrúmsloft og gott aðgengi að utan. Hægt er að tengja Setrið við veitingastaðinn Brasserie með því að hafa sameiginlegt hlaðborð fyrir framan salinn.
Brasserie Grand
er fyrsta flokks veitingastaður, með arni fyrir miðju. Það er notalegt að sitja við hlýjan arineldinn, drekka kaffi og njóta góðra veitinga. Staðurinn rúmar allt að 70 manns í sæti.
Aðstandendur eru velkomnir að koma í heimsókn til þess að skoða salina og veitingarnar.
Kynningarblöðungur (PDF skjöl) sem hægt er að prenta út:
Upplýsingar um salarkynni fyrir erfidrykkjur (PDF skjal 743 KB)
Hafa samband vegna erfidrykkju á Grand hótel
Upplýsingar um allt sem snýr að erfidrykkjum eru veittar af:
Salvör Brandsdóttir, matreiðslumeistari og sölufulltrúi í síma 514 8019 og á netfangið salvor@grand.is
Linda C. Martinsdóttir, ráðstefnustjóri í síma 514 8020 og á netfangið linda@grand.is
Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





