Fréttir og tilboð

Johan 'Guzz' Gustafsson á Food and fun

15.02.2010

Matreiðslumeistarinn Johan Gustafsson verður á Food and fun hátíðinni á Grand hótel og mun hann framreiða girnilegar kræsingar af mikilli list.
Johan
Johan Gustafsson, eða ”Guzz”, eins og hann er kallaður hefur matreitt á  mörgum af þekktustu veitingastöðum í Gautaborg. Hann starfaði sem  yfirmatreiðslumeistari á Grand hotel í Marstand í 12 ár og hann hefur einnig séð um fjölmargar veislur fyrir Carl Gustav Svíakonung og aðrar þjóðþekkta einstaklinga frá Norðurlöndunum og Evrópu.
Í dag rekur hann sinn eigin veitingastað Mama´s í sjávarþorpinu Marstand rétt utan við Gautaborg.

Okkur er það mikill heiður að taka á móti Johan ”Guzz” Gustafsson og það verður spennandi að fá að sjá og smakka það sem hann mun framreiða á Food and fun hátíðinni.

Meira um Food and fun á Grand hótel

more

Fréttir og tilboð

Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals

Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...

Meira