Fréttir og tilboð
Meira Food and Fun
01.03.2010
Það er búið að vera líf og fjör í tengslum við Food and fun og heppnaðist hátíðin með eindæmum vel. Það var aðdáunarvert að fylgjast með sænska matreiðslumeistaranum Guzz Gustafsson í eldhúsinu og gaman að bragða á kræsingunum sem hann reiddi fram. Við ætlum að bjóða áfram Food and fun matseðilinn út þessa viku.
Fjögurra rétta Food and fun matseðill á Brasserie Grand
Þorsk og humar carpaccio með rauðbeðu og humar vinaigrette,
djúpsteiktum ostrum og parmesan osti.
Bakaðar ýsulundir með piparrót og “Västerbotten” osti,
sellerýrótar ragout og kóngakrabba í súrsætri dillsósu.
Lambahryggvöðvi með reyktum möndlu kartöflum, steinseljurót,
hvítlauks-kremi og ítalskri pancetta pylsu.
Vetrar eplaseyði með kaffi-ís og vanillukexi
Verð fyrir kvöldverðinn er 6.900 krónur.
Borðapantanir berist á netfangið eða í síma 514 8000
Fréttir og tilboð
Gullaldardjass undir stjórn Hauks Gröndals
Það er ekki á hverjum degi sem landsmönnum gefst tækifæri til að hlýða á lifandi djass frá gullald...
Meira





